Luna Soft Blend er mýkri og gripmeiri útgáfan af Luna, hönnuð fyrir leikmenn sem vilja meiri snertingu og öruggara grip – sérstaklega í köldu eða röku veðri. Mýkra plastið gefur góða losun og smá aukna nákvæmni í púttum þar sem diskurinn „situr“ betur í hendi.















