Um Frisbígolfbúðina
Frisbígolfbúðin er fyrsta verslun sinnar tegundar á Íslandi, stofnuð árið 2004 og hefur starfað við góðan orðstýr allar götur síðan. Frisbígolfbúðin býður upp á allt sem frisbígolfarinn þarf á að halda til að stíga sín fyrstu skref og þá sem lengra eru komnir. Frisbígolfbúðin hefur komið að hönnun, smíði, vallaruppsetningu og viðhaldi flesta frisbígolfvalla á Íslandi ásamt því að útvega allt sem þarf til að smíða góða frisbígolfvelli í hæsta gæðaflokki. Viðskiptavinir eru almenningur á öllum aldri, fyrirtæki og sveitarfélög. Starfsmenn Frisbígolfbúðarinnar eru hoknir af reynslu með mikla þekkingu, veita góð ráð og persónulega þjónustu.
Frisbígolfbúðin býður upp á kennslu fyrir einstaklinga, vinahópa og vinnustaði. Við mælum eindregið með því að byrjendur fái einkakennslu til að læra réttu handbrögðin. Dæmin sína að það er mjög erfitt að tileinka sér rétta kasttækni eftir að hafa vanið sig á annað. Hámarksfjöldi í einkakennslu er 1-4 manns. Yfirumsjón með frisbígolfkennslu hefur Árni Sigurjónsson, þrefaldur Íslandsmeistari karla í fullorðinsflokki og þriðja sæti í Eurotour árið 2019.
Frisbígolfbúðin er opin alla virka daga frá klukkan 11.00 – 18.00 og á laugardögum frá 11.00 – 16.00. Frisbígolfbúðin er með verslun í verslunarmiðstöðinni í Glæsibæ við Álfheima 74 í Reykjavík á jarðhæð við aðalinngang.
Það eru næg bílastæði við aðalinngang og í bílastæðahúsi hægra megin við Glæsibæ. Öll bílastæði við Glæsibæ eru gjaldfrjáls og gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða.