Skilmálar

Frisbígolfbúðin er í eigu Flugdiska ehf, kt. 640398-2219 en Smartfix ehf, kt. 481118-1070 heldur utan um sölu og rekstur verslunarinnar. Verslun er rekin að Hamraborg 7, 200 Kópavogur ásamt öðrum rekstri Smartfix ehf.

Smartfix ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Afhending vöru fer fram á nokkra máta, hægt verður að sækja pöntun í Frisbígolfbúðina/Smartfix Hamraborg 7, Kópavogi, eða að fá senda vöru með póstinum næsta virka dag eftir pöntun. Ef lagerstaða er röng og vara ekki til sem pöntuð er á netinu, hefur starfsmaður okkar samband við viðskiptavin og annað hvort finnur aðra vöru eða endurgreiðir greidda upphæð. Flugdiskar ehf. ber enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni á vöru sem hún kanna að verða fyrir í flutningi hjá Póstinum eða öðrum flutningsaðilum, ábyrgðin liggur hjá þeim. Ef vara skemmist á leið frá Flugdiskum til flutningsaðila liggur ábyrgðin hjá Flugdiskum.

Vinsamlegast athugið að allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu. Birgðastaða og verð eru uppfærð reglulega en samt er alltaf og möguleiki á misræmi til staðar sem ekki er hægt að taka ábyrgð á. Þannig geta verð breyst eftir uppfærslur t.d. vegna nýrra birgða á lager.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera í sama ástandi og við kaup vörunnar þegar henni er skilað. Sé varan innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin.

Verð á vöru og sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti í næsta pósthús. Sendingakostnaður getur verið mismunandi í hverju tilfelli fyrir sig.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

Flugdiskar ehf.
Kt. 640398-2219
Hamraborg 7
200 Kópavogur

sala@frisbigolfbudin.is